Halló elsku þið öll:) Gleðileg jól!!:)
Sorry hvað ég er búin að vera ódugleg að blogga, það er svona þegar maður kemst ekki i tölvu alltaf. Ég er búin að hafa það súper fínt um jólin...gerði lítið annað en að borða og sofa. Fekk góða pakka og alles:) Tildæmis bók eftir uppáhaldið mitt Neil Gaiman "The day I swapped my dad for two goldfish"...mögnuð bók. Og svo líka bókina "Heljarþröm" eftir Philip Ardagh......ef ég myndi einhvern tíman skrifa bók þá myndi ég gera það eins og hann:)
Talandi um jólagjafir....þá gaf ég sjálfri mér smá jólapakka;) Keypti mer disk með Cranes "Loved" ooogg líka miða á tónleikana með múm og slowblow sem voru rett fyrir jól(SNILLDAR tónleikar þeir)!:)
jæja þá eru ekki margir klukkutímar eftir af þessu ári. Þetta er búið að vera bara annsi gott ár, og ég held að það sem standi mest upp á árinu, hafi verið sumarið og listaskólinn í Holbæk.....og allt árið i heild sinni....og allt frábæra fólkið sem ég er búin að kynnast....brillara ár!!!:o) Ég ætla byrja árið með trompi og vera i eintómu partýstandi frá föstud, fram á sunnud;) Fer á rölt milli partýa a morgun.....svo er það nýársparty á laugad....24.hours party people;)
Og ég fynn á mér að þetta ár á bara eftir að verða þrusu skemmtilegt!:)
Hafið það sem allra best um áramótin á íslandi og eins út í heimi......og munið.....djamma nógu mikið og drekka líka eftir því;) Heyrumst á því næsta.....knús og kram og Gleðilegt ár!!!:)
p.s. Kannski maður reynir að standa sig betur á næsta ári og bloggi aðeins meira...fólk er farið að kvarta í mér, hvað ég blogga sjaldan. Reyni að bæta það:)